Guðríður Einarsdóttir

Hinseginvika Árborgar

Vikuna 17. – 23. janúar 2022 ætlar Forvarnateymi Árborgar í samvinnu við sveitarfélagið að halda sína fyrstu Hinseginviku frá upphafi. Hátíðin er haldin til að auka fræðslu, skapa umræður og veita stuðning til þeirra sem tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Til að mynda verða lesnar bækur um hinsegin málefni í leikskólum …

Hinseginvika Árborgar Lesa Meira>>

Jólakveðja

Starfsfólk Sunnulækjarskóla óskar öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og óskar þeim farsældar á komandi ári. Við þökkum þann hlýhug sem skólanum hefur verið sýndur á undanförnum árum. Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 20. desember en opnar aftur mánudaginn 3. janúar. Skólastarf hefst að loknu jólaleyfi, þriðjudaginn 4. janúar 2022 samkvæmt stundaskrá. …

Jólakveðja Lesa Meira>>

Litlu jólin

Senn líður að jólum og nú eru aðeins nokkrir dagar til Litlu jóla. Nemendur hafa skreytt svæðin sín og sameiginlegu rýmin svo það er mjög jólalegt um að litast í skólanum. Litlu jólin í Sunnulækjarskóla verða enn og aftur með nokkuð öðru sniði í ár vegna gildandi takmarkana í samfélaginu. Það verða stofujól þar sem …

Litlu jólin Lesa Meira>>

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Þennan veturinn mun Stóra upplestrarkeppnin í 7. árgangi vera haldin með breyttu sniði. Síðustu árin hefur Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn rekið verkefnið en nú er komið að sveitarfélaginu Árborg og grunnskólunum að sjá um skipulag keppninnar. Rithöfundur keppninnar þetta árið er Bergrún Íris Sævarsdóttir og ljóðskáldið er Jónas Hallgrímsson. Byrjað verður á …

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk Lesa Meira>>

Skreytingadagur í Sunnulækjarskóla

Senn líður að jólum og af því tilefni klæðum við skólann okkar í jólabúning. Á morgun föstudaginn 26. nóvember verður skreytingadagur í Sunnulækjarskóla. Þar sem skólinn býr nú við takmarkanir vegna sóttvarna getum við ekki haft hefðbundna söngstund né skipulagt samvinnu vinabekkja eins og venja var til fyrir Covid. Nemendur munu því vinna í hópum …

Skreytingadagur í Sunnulækjarskóla Lesa Meira>>

Stórundarlega smásagan mín, Skugga-, ljós- og litaleikhús

Nemendur  5. bekkjar í myndmennt hafa tvo síðustu mánudaga fengið námskeið  sem kallast, Stórundarlega smásagan mín: Skugga-, ljós- og litaleikhús.  Það voru þær Oddný Eir og Áslaug Davíðsdóttir sem sáu um að kynna fyrir nemendum hvernig hægt er að vinna með hugmynd út frá þremur atriðum. Í fyrsta lagi tengingu við okkar eigin líðan, í öðru …

Stórundarlega smásagan mín, Skugga-, ljós- og litaleikhús Lesa Meira>>