Fréttir

Starfsdagur og foreldraviðtöl

Kæru foreldrar og forráðamenn. Á morgun, fimmtudaginn 1. febrúar er starfsdagur og undirbúningur kennara í skólanum. Nemendur mæta því ekki í skólann á morgun. Á föstudaginn 2. febrúar eru foreldraviðtöl hjá okkur og þá mæta nemendur með foreldrum í skólann. Hefðbundið skólastarf hefst svo að nýju mánudaginn 5. febrúar Kveðja, Starfsfólk Sunnulækjarskóla

Veðurspá – Skólastarf og akstursþjónusta

Í ljósi veðurspár hefur verið ákveðið samstarfi við aksturþjónustu GT að skólabílar keyri nemendur heim kl. 12:00 sem búa utan þéttbýlis. Skólastarf verður óbreytt en foreldrar yngstu barna skólans meta það sjálfir hvort ástæða sé til að sækja þau fyrr ef veður versnar skyndilega.

Litlu jólin

19. desember kl. 20:00-22:00 8.-10. bekkur verður með jólaball og fer í jólafrí að því loknu. Nemendur í þessum árgöngum mæta því ekki 20. desember. 20. desember Stofujól hjá 1.-7. bekk – kl. 9.30   Mæting nemenda (nemendur í 5. bekk mæta kl. 09:00) – kl. 9.35   Helgileikur sýndur nemendum og starfsfólki skólans – kl. 9.55  …

Litlu jólin Lesa Meira>>

Endurskinsvesti fyrir 1. bekk

Foreldrafélag Sunnulækjarskóla gaf 1.bekkingum að gjöf nafnamerkt endurskinsvesti skv. hefð sl. ára. Elís Kjartansson frá Lögreglunni kom og sagði nokkur vel valin orð við hópinn og afhenti nemendum vestin að gjöf fyrir hönd Foreldrafélagsins. Hefðin er orðin fastur liður í starfsemi foreldrafélagsins og á alltaf vel við enda mjög mikilvægt að okkar dýrmætasti hópur sjáist …

Endurskinsvesti fyrir 1. bekk Lesa Meira>>

Syndum saman

Í nóvember stóð Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, í samstarfi við Sundsamband Íslands, fyrir Landsátaki í sundi. Vikan 20.-24.nóvember var tileinkuð grunnskólum landsins þar sem íþróttakennarar voru hvattir til að skrá skólann til þátttöku og hvetja börnin til að synda, (táknrænt ) til Parísar í tilefni af Ólympíuleikunum sem fara þar fram 2024. Við í Sunnulækjarskóla …

Syndum saman Lesa Meira>>

Starfsdagur og foreldraviðtöl

Það er starfsdagur í skólanum mánudaginn 30. október næstkomandi og þriðjudaginn 31. október eru foreldraviðtöl sjá skóladagatal Á starfsdegi koma nemendur ekki í skólann og á foreldraviðtalsdegi koma nemendur aðeins í skólann til að fara í viðtal með forráðamönnum sínum á þeim tíma sem bókaður hefur verið í Mentor. Við hlökkum til að hitta foreldra …

Starfsdagur og foreldraviðtöl Lesa Meira>>

Kvennaverkfall 24. október – skólastarf fellur niður

Kæru foreldrar og forráðamenn. Vegna kvennaverkfalls þriðjudaginn 24. október næstkomandi munum við ekki geta haldið úti skólastarfi samkvæmt skóladagatali. Allt skólastarf fellur niður. https://www.ki.is/um-ki/utgafa/frettir-og-pistlar/frettir/2023/bodad-til-kvennaverkfalls-24-oktober/ kveðja Starfsfólk Sunnulækjarskóla  

Aðalfundur foreldrafélagsins

Kæru foreldrar og forráðamenn Boðaður er aðalfundur foreldrafélags Sunnulækjarskóla fimmtudaginn 2. nóvember kl. 17:30 í Fjallasal Sunnulækjarskóla. Markmið félagsins eru að: – styðja skólastarfið og efla tengsl heimilis og skóla – að efla samstarf og samstöðu foreldra innbyrðis – koma á umræðu og fræðslufundum um uppeldis- og fræðslumál – vinna að heill og hamingju nemenda …

Aðalfundur foreldrafélagsins Lesa Meira>>