Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Matseðill

Heimili og skóli

By birgir | 15. september 2010

Heimili og skóli, landssamtök foreldra, gáfu öllum 5. bekkingum og foreldrum þeirra bækling um EINELTI.

Norræna skólahlaupið

By birgir | 15. september 2010

Allir nemendur skólans tóku þátt í Norræna skólahlaupinu s.l. föstudag og stóðu sig ótrúlega vel. Tilgangur Norræna skólahlaupsins er að hvetja nemendur til að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.

Eineltisátak, opinn borgarafundur

By birgir | 12. september 2010

Landssamtökin Heimili og skóli í samvinnu við fjölda aðila boða til opins borgarafundar  í Sunnulækjarskóla, þriðjudaginn 14. september undir yfirskriftinni  „Stöðvum einelti strax“.

Norræna skólahlaupið föstudaginn 10.september 2010

By birgir | 9. september 2010

Föstudaginn 10. september, ætlar skólinn að taka þátt í Norræna skólahlaupinu. Hlaupið verður á skólatíma og nokkrar vegalengdir í boði sem hæfa aldri og getu. Mikilvægt er að nemendur komi á góðum skóm og búnir til útiveru.


Skóladagurinn hjá 1.- 4.bekk verður að öðru leiti samkvæmt stundaskrá.


Skóladeginum hjá 5.- 10.bekk lýkur hins vegar á hádegi þennan dag.

Heimsókn í MS

By birgir | 6. september 2010


Valhópur í heimilisfræði í 10. bekk fór í heimsókn í MS.

Að heimsókninni lokinni skrifa nemendurnir ritgerð um heimsóknina.