Eyjan- Unglingadeild
Kennarar leitast við að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir og finna þeim verkefni við hæfi hverju sinni. Með aukinni leikni og góðri samvinnu er stefnt að því að nemendur verði sjálfstæðir í sinni vinnu og færir um að bjarga sér við daglegar áskoranir. Reglulegt mat á stöðu nemenda í námi er forsenda viðeigandi aðlögunar og stuðnings.
A-leið
- Faggreinateymi ber ábyrgð á námsframvindu nemanda, einkunnagjöf og eftirfylgni í kennslu hver sem aðlögunin kann að vera.
- Nemendur sem hafa þörf fyrir aðlögun í einstaka greinum eða efnisþáttum námsgreinar.
- Nemendur sem hafa þörf fyrir aðlögun á kennsluaðstæðum í einstökum greinum.
B-leið
- Eyjuteymi styður faggreinateymi við aðlögun námsefnis og finnur mismunandi leiðir í námi.
- Nemendum gefst kostur á að stunda nám tímabundið undir verkstjórn Eyjuteymis í einstaka námsgreinum.
Helstu verkefni:
- Eyjuteymið vinnur í samstarfi við faggreinateymin að því að tryggja þátttöku nemenda með jafnöldrum í námi.
- Fulltrúar Eyjuteymis sitja teymisfundi sem haldnir eru reglulega með foreldrum nemenda sem njóta stuðnings stoðþjónustunnar í ákveðnum greinum.
- Teymisfundirnir eru haldnir til að fylgjast með framvindu náms, stöðu nemandans í skólanum og hugsanlegum breytingum miðað við árangur.
- Einstaklingsnámsskrá, hæfniviðmið.
- Kennsla.
- Aðlögun náms og námsefnis hjá nemendum.
- Námsefnisgerð.
- Samráð við foreldra.
- Samvinna með stoðþjónustu.
- Skipulag á svæðinu.
- Skipulögð kennsla. Vinnustýringar, vinnuseðlar.
- Önnur úrræði fyrir nemendur – starfsnám utan skóla, í skóla/utanumhald.
- Áætlanagerð - einstaklingsmarkmið vegna nemenda sem eru mikið í Eyju.
- Seta í lausnateymi 2x í mánuði.