Skólahjúkrun
Meginmarkmið skólaheilsugæslu er að stuðla að því að börn fái að vaxa, þroskast og stunda nám sitt við bestu andlegu, líkamlegu og félagslegu skilyrði sem völ er á.
Heilsugæsla skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd. Skólahjúkrunarfræðingar vinna í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Skólahjúkrunarfræðingur í Sunnulækjarskóla er Berglind Björk Guðnadóttir og er hún með skrifstofu í vesturenda skólans á 2. hæð.
Viðvera skólahjúkrunarfræðings í skólanum er sem hér segir:
- mánudagur kl. 8:00 - 12:00
- þriðjudagur kl. 8:00 - 16:00
- miðvikudagur kl. 8:00 - 16:00
- fimmtudagur kl. 8:00 - 16:00
- föstudagur kl. 8:00 - 16:00
Netfang: sunnulaekjarskoli@hsu.is
Ólíkt öðru starfsfólki skólans eru skólahjúkrunarfræðingar starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og þeir geta því verið kallaðir þangað fyrirvaralaust.
- 1. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt viðtali um lífsstíl og líðan.
- 4. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt viðtali um lífsstíl og líðan
- 7. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt viðtali um lífsstíl og líðan.
Bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta). Stúlkur eru bólusettar gegn mannapapillomaveiru (tvær sprautur með 6 mánaða millibili). - 9. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling ásamt viðtali um lífsstíl og líðan. Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki, kíghósta og stífkrampa.