Starfsáætlun sérdeildar Sunnulækjarskóla
Hagnýtar upplýsingar
Skólaárið 2023-2024 stunda 30 nemendur nám við deildina. Auk þess veitir Setrið í samvinnu við skólaþjónustu Árborgar, ráðgjöf til grunnskóla
- Árlegur starfstími sérdeildar fylgir skóladagatali Sunnulækjarskóla.
- Áhersla er lögð á að nemendur fái tækifæri til að taka þátt í föstum hefðum í skólastarfinu í sínum heimaskóla með viðeigandi stuðningi s.s. þemadögum, vinaviku, söngstundum, jólaballi, árshátíð og bekkjaruppákomum.
- Fulltrúi nemenda í Setrinu situr í nemendaráði Sunnulækjarskóla og tekur þátt í skipulagningu á félagslífi skólans.
- Foreldraviðtöl á foreldradögum fara að jafnaði fram í heimaskóla nemenda og fulltrúi frá Setrinu tekur þátt í fundinum.
- Foreldraviðtöl nemenda sem stunda alfarið nám í Setrinu fara fram í Setrinu.
- Setrið fylgir skólareglum Sunnulækjarskóla.
- Setrið tekur á móti nemendum frá kl. 7.50.
- Ferðaþjónustubílar á Selfossi koma á bilinu 7.50 – 8.10.
- Skóla lýkur kl. 13.30 á mánudögum til fimmtudags.
- Skóla lýkur 13.00 á föstudögum.
- Nemendur nýta mötuneyti Sunnulækjarskóla og skrá foreldrar börn sín í matar og eða ávaxta áskrift.
- Frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk starfar frá 13.00 - 16.30.
- Frístundaklúbburinn Kotið er fyrir nemendur Árborg í 5. – 10. bekk starfar frá 13.00 - 16.30.
- Frístundaheimilið og Kotið eru opin á starfs- og foreldradögum, jóla- og páskaleyfi frá 8.00 – 16.30. Lokað í vetrar- og haustleyfi.
- Nemendur hafa aðgang að skólahjúkrunarfræðingi Sunnulækjarskóla.
- Forföll skal tilkynna daglega til ritara eða hringja beint í Setrið.
- Beiðni um leyfi tilkynnist deildarstjóra.
Eftirfarandi efnisatriði falla undir starfsáætlun Sunnulækjarskóla:
Innra mat
Símenntunaráætlun
Rýmingaráætlun
Starfsfólk
Skipurit
Umsóknarferli
Ráðgjöf
Fagráð