Sérdeild Sunnulækjarskóla

Hlutverk sérdeildar Sunnulækjarskóla, Setursins er að veita nemendum með sérþarfir fjölbreytt nám í hvetjandi námsumhverfi sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu. Deildarstjóri ber ábyrgð á faglegu skólastarfi deildarinnar.

Áhersla er lögð á að nemendur geti þroskað persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu og verið félagslega virkir þátttakendur í skólasamfélaginu þar sem byggt er á styrkleikum þeirra.