Styrkur frá Lionsklúbbi Selfoss

Í síðustu viku fékk Setrið skemmtilega heimsókn frá Lionsklúbbi Selfoss. Lions menn komu færandi hendi með styrk upp á 150.000 krónur sem mun nýtast vel í söfnun fyrir Prowise Skjá.  Allir nemendur Setursins tóku á móti þessum herramönnum frá Lions og voru nemendur til fyrirmyndar og sýndu þessu mikinn áhuga.
Setrið og Sunnulækjarskóli þakka Lionsklúbbi Selfoss fyrir rausnalegan stuðning.