Kæru foreldrar og forráðamenn barna í 8. bekk
Fimmtudaginn 17. september kl. 17:00 verður haldin fræðsla fyrir foreldra og forráðamenn barna í 8. bekk í Fjallasal (Sunnulækjarskól)
Fræðslan er liður í því að styðja við og efla þekkingu foreldra og forráðamanna á því aldursskeiði sem börn þeirra eru nú á. Dagskráin er sérstaklega sniðin að foreldrum og forráðamönnum barna sem eru að stíga sín fyrstu skref á unglingastigi grunnskólans.
Jafnframt munu umsjónarkennarar árgangsins kynna starfið fram undan og fara yfir helstu áherslur vetrarins.
Góð samvinna heimila og skóla er lykill að farsælli skólagöngu barna. Við hvetjum því eindregið til þess að að minnsta kosti einn forráðamaður frá hverju barni sæki fræðsluna.
Hlökkum til að hitta ykkur

