Kæru foreldrar
Stjórn foreldrafélags Sunnulækjarskóla stendur fyrir vinnustofu um Farsældarsáttmála skólans okkar í næstu viku!
Farsældarsáttmálinn snýst um að foreldrar/forráðamenn hittist og ræði mál árgangsins, sameinist um gildi og viðmið – afurðin er plaggat með 9 atriðum sem aðstandendur svo kvitta undir.
Helstu upplýsingar:
Mánudagur 28.sept: Miðstig, 5.-7.bekkur frá kl. 17:00-19:00
Mánudagur 28.sept: Yngsta stig, 1.-4.bekkur frá 20:00-22:00
Þriðjudagur 29.sept: Elsta stig, 8.-10.bekkur frá 17:00-19:00.
Til þess að vinnan skili tilætluðum árangri er vænst til þess að eitt foreldri frá hverju heimili komi og taki þátt.
Ávinningurinn af samstöðu og virku samtali foreldra er gríðarlegur fyrir börnin okkar og frábær forvörn 🙂
Hér er hlekkur á facebook viðburðinn, endilega meldið ykkur og deilið honum inn á facebook síður árganganna fyrir okkur:
Farsældarsáttmáli Sunnulækjarskóla – Facebook viðburður
Hér er hlekkur á heimasíðu Heimilis og skóla með nánari upplýsingum um Farsældarsáttmálann:
Farsældarsáttmálinn – Heimili og skóli
Minnum svo á instagramm foreldafélagsins þar sem allt það helsta er sett inn:
Instagram Foreldrafélags Sunnulækjarskóla
—————————————————————————-
Góðar kveðjur úr Sunnulækjarskóla

