Undanfarna daga höfum við verðið að skapa vinategsl milli nemenda í yngri og eldri bekkjum. Þannig fer 6. bekkur í heimsókn í 1. bekk, 7. bekkur í 2. bekk og svo koll af kolli og mynduð eru vinatengsl milli tiltekinna nemenda í hvorum bekk.
Þannig fór 6. bekkur að heimsækja 1. bekk á föstudaginn og var með þeim í valtíma. Krakkarnir voru öll alveg til fyrirmyndar og gaman að sjá hvað þessi eldri urðu ábyrgðarfull og tóku vel þátt með yngri krökkunum.