Í dag kom sendinefnd frá Kína í heimsókn í Sunnulækjarskóla.
Sendinefndin er frá Sichuan héraði í Kína og er hér á landi að kynna sér íslenskt samfélag. Gestirnir fengu stutta kynningu á Sunnulækjarskóla en gengu svo um skólann og heilsuðu upp á nemendur.
Nemendur skólans voru sér og sínum til mikils sóma og sýndu gestunum hvað þeir voru að fást við.