Fimmtudagurinn 23. febrúar var tekinn með trompi hér í Sunnulæk. Dagurinn hófst á söngstund í Fjallasal þar sem saman var komin alls kyns lýður. Bæði nemendur og starfsfólk skólans tóku virkan þátt og klæddust ýmsu búningum. Að lokinni söngstund var verðlaunaafhending í Lífshlaupinu, þar sem bæði árgangar og bekkir fengu viðurkenningu.
Arnar Helgi Magnússon formaður Nemendafélagsins veitti viðurkenningarnar, en foreldrafélagið hafið veg og vanda að skráningunni líkt og í fyrra.
Eftirtaldir árgangar fengu viðurkenningu fyrir frábæran árangur í Lífshlaupinu:
1. – 3. bekkur
2. – 5. bekkur
3. – 2. bekkur
Þessir bekkir fengu líka sérstaka viðurkenningu fyrir góða þátttöku í Lífshlaupinu.
1. – 1. ÞE
2. – 2. AÞ
3. – 4. SJ