Haustþing KS, starfsdagur

Vegna haustþings kennara á Suðurlandi verður starfsdagur í Sunnulækjarskóla föstudaginn 2. október n.k. og því mæta nemendur ekki til skóla þann dag. Þingið hefst e.h. fimmtudaginn 1. október og því lýkur kennslu þann dag sem hér segir:

1. – 4. bekkur: kennslu lýkur samkvæmt stundaskrá, engin breyting.

5. – 7. bekkur: kennslu lýkur kl 13:00

8.– 10. bekkur: kennslu lýkur kl 12:40 (matartími til 13:10)

 

Hægt er að sjá yfirlit yfir alla starfsdaga skólaárið 2015 -2016 á skóladagatali á heimasíðu skólans, www.sunnulaekjarskoli.is.