Kynningarmyndbönd um nám og störf

Kynningarmyndbönd um nám og störf fyrir nemendur og foreldra

Þessa dagana standa nemendur í 10. bekk frammi fyrir því að velja sér nám næsta vetur. Það er margt í boði og því mikilvægt fyrir nemendur ásamt foreldrum að kynna sér námsframboð vel.  

Mennta- og menningarmálaráðuneytið ásamt Samiðn hafa látið útbúa fjögur stutt myndbönd um þau tækifæri sem felast í störfum í byggingar- og málmiðnaði. Markmiðið er að myndböndin gefi góða innsýn í þessi störf og kveiki áhuga hjá ungu fólki sem er að velja sér framtíðarstarf. Eins er markmiðið að vekja athygli nemenda og foreldra þeirra á hagnýtu og skemmtilegu námi sem opnar leiðir inn í fjölbreytt framhaldsnám og starfsvettvang þar sem eftirspurn er eftir fólki og framtíðarhorfur góðar.

Myndböndin eiga að nýtast nemendum, foreldrum, náms- og starfsráðgjöfum og öðrum fræðsluaðilum. Hvert myndband er 90 sekúnda langt en mælt er með því að horfa á þau öll til að fá heildarmyndina.

Smíða

Byggja

Framleiða

Um störfin

Eins lét Rafiðnaðarsambandið nýlega gera fimm myndbönd um störf í rafiðnaði:

Störf í rafiðnaði

Óbeint rafmagn

Hvernig komst ég hingað?

Framtíðin, menntun og störf

Allt hægt með rafmagni

Myndböndin eru hluti af verkefni sem unnið er í ráðuneytinu sem hefur það markmið að efla kynningu á iðn-, verk- og tækninámi. Sjá nánar hér.