Laus störf við skólann

Við Sunnulækjarskóla á Selfossi er laus staða umsjónarkennara í 5. bekk.

Í skólanum eru um 710 nemendur og þar er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans: http://www.sunnulaekjarskoli.is og í tölvupósti: birgir@sunnulaek.is

Umsóknarfrestur er til 8. desember.

Sótt er um starfið á vef Sveitarfélagsins Árborgar, http://storf.arborg.is.

Skólastjóri

_____________________________________________________________________________

Komdu að vinna með okkur!