Notum íslenskuna óhikað

Mánudaginn 26. október fengu nemendur í 9. bekk heimsókn frá Króla í tengslum við verkefnið Notum íslenskuna óhikað! á vegum Listar fyrir alla. Verkefnið er ætlað nemendum í 9. bekk og miðar að því að efla áhuga þeirra á íslensku, skáldskap og tungumálinu okkar.
Í fyrirlestrinum ræddi Króli við nemendur um íslenskuna á léttan og skemmtilegan hátt, meðal annars hvort íslenskan sé að breytast, mikilvægi þess að nota hana í daglegu lífi og hvernig hægt sé að tjá sig á skapandi hátt í gegnum textagerð, tónlist og skáldskap. Einnig hvatti hann nemendur til að nota íslenskuna óhikað og láta ekki ótta við mistök standa í vegi fyrir sér.
Nemendur tóku vel þátt í umræðum og fengu tækifæri til að velta fyrir sér stöðu íslenskunnar og eigin samskiptum við tungumálið. Heimsóknin var bæði fræðandi og skemmtileg og fellur vel að markmiðum skólans um að efla málvitund og styrkja íslenskuna meðal ungmenna.