Í dag skreyttum við skólann okkur hátt og lágt og færðum hann í jólabúninginn. Dagurinn hófst með söngstund í Fjallasal þar sem flautukór úr 3. bekk Sunnulækjarskóla hóf dagskrána.
Skreytingadagurinn gekk mjög vel fyrir sig og bros var á hverju andliti.
Margir foreldrar lögðu leið sína í skólann og kíktu á nemendur að störfum. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.