Vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga í grunnskólum Árborgar, í ljósi fyrirmæla heilbrigðisyfirvalda, mun áætlaður starfsdagur 18. mars færast til mánudagsins 16. mars nk. Því fellur almennt skólastarf niður nk. mánudag sem og frístundastarf yngstu barnanna. Starfsdagurinn verður nýttur af stjórnendum og starfsfólki til endurskipulagningar starfsins.