Í morgun hófu nemendur Sunnulækjarskóla daginn með söngstund í tilefni Þorra. Söngurinn var kraftmikill og sungið af innlifun. Hópurinn, sem var að stórum hluta klæddur íslenskum lopapeysum, tók sig vel út í tröllatröppunum og var í góðu samræmi við Þorrann sjálfan. Í lokin var þó sungið eitt ástarljóð úr íslensku Eurovision söngvakeppni síðastliðins árs og létu börnin ekki heldur sitt eftir liggja við það tækifæri.