Verkfall grunnskólakennara

Sunnulækjarskóla,  13. maí 2014

Kæru foreldrar og forráðamenn

Eins og flestum er kunnugt hafa kennarar í grunnskólum boðað eins dags verkfall þann 15. maí n.k.. og tekur það gildi hafi ekki náðst kjarasamningar fyrir þann tíma.  Vegna þess eruð þið beðin um að fylgjast vel með fréttum af gangi mála.

Ef til boðaðs verkfalls kemur fellur öll kennsla í Sunnulækjarskóla ásamt Setri, niður þann dag og því er ekki mögulegt að taka á móti nemendum meðan á verkfalli stendur.

Skólavistunin Hólar verður rekin með óbreyttu sniði fyrir þau börn sem þar hafa verið í vistun frá kl. 13:00.

Vakin er athygli á því að allur skólaakstur fellur niður í verkfalli.

Þeir nemendur sem hafa pantað máltíðir en neyta þeirra ekki vegna þess að skólahald leggst af meðan á verkfalli stendur fá þær endurgreiddar eða geta nýtt þær á næsta tímabili.

Allar nánari upplýsingar verður hægt að fá á skrifstofu skólans í síma 480 5400. 

Með ósk um að úr rætist,
Birgir Edwald,
skólastjóri