Í dag komu væntanlegir nýnemar Sunnulækjarskóla í heimsókn. Tekið var manntal og allir boðnir velkomnir. Síðan var gengið um skólann og nýnemarnir kynntu sér aðstæður á nýjum vinnustað. Margt var skemmtilegt og margt forvitnilegt og um margt var spurt. Að endingu var þó niðurstaðan að það væri gaman í skólanum og að þar væri skemmtilegt að vera.