Ljúfur englasöngur hljómaði um sali og göng Sunnulækjarskóla í morgun þegar 4. bekkur bauð foreldrum til forsýningar á Helgileik 2012.
Á hverju ári sjá nemendur og kennarar í 4. bekk um að setja upp og sýna helgileikinn þar sem segir frá fæðingu Jesú. Leiksýningin er sýnd í upphafi Litlu jólanna sem verða á morgun fimmtudaginn 20. desember. Daginn fyrir frumsýningu er foreldrum boðið til forsýningar. Að þessu sinni voru 55 leikendur í sýningunni.
Við þökkum leikendum og leikstjórum fyrir.