Á Öskudag munum við gera okkur dagamun og byrja daginn með söngstund. Einnig hvetjum við börnin til að koma í furðufötum þennan dag, okkur öllum til ánægju og yndisauka. Við munum ekki kenna sund á Öskudegi þar sem vatn fer illa saman við búninga og andlitsmálun. Á miðstigi, 5. – 7. bekk lýkur skóladegi því kl 13:00 en stundaskrá helst óbreytt að örðu leyti.
Síðar þennan dag verður haldin sameiginleg Öskudagsskemmtun fyrir börn í sveitarfélaginu þar sem slegið verðu í tunnur og fleiri hefðbundin Öskudagverk unnin. Nánari upplýsingar um þá skemmtun fylgja í skilaboðum frá Zelsíus hér að neðan
Kveðja,
Birgir
=================================
Miðvikudaginn 13. febrúar næstkomandi stendur félagsmiðstöðin Zelsiuz fyrir Öskudagsskemmtun í kjallaranum að Austurvegi 2a. Herlegheitin byrja kl. 13:15 fyrir börn í 1. – 4. bekk og kl 14:45 fyrir börn í 5. – 7. bekk Meðal þess sem verður í boði eru leikir í umsjón unglinga úr Zelsiuz, fjörug tónlist, kötturinn margfrægi verður sleginn úr tunnunni og sjoppa verður á staðnum. Aðgangur er ókeypis svo um að gera að fjölmenna.
Kv. Unglingarnir og starfsfólkið í Zelsiuz
=================================