Lokahátíð stóru upplestarkeppninnar fór fram í Sunnulækjarskóla fimmtudaginn 7. mars. s.l.
Tólf keppendur frá fimm skólum tóku þátt í lokakeppninni. Það voru Grunnskólinn í Þorlákshöfn, Grunnskólinn í Hveragerði, Vallaskóli, Barnaskólinn á Eyrarbaka og Stokkseyri auk Sunnulækjarskóla sem sendu lið til keppninnar.
Allir keppendur stóðu sig frábærlega og var dómnefnd mikill vandi á höndum.
Sigurvegari keppninnar var Pétur Már Sigurðsson, nemandi í Sunnulækjarskóla, í öðru sæti varð Sunneva Björk Birgisdóttir, nemandi í Grunnskólanum í Hveragerði og í þriðja sæti varð Brynhildur Ágústsdóttir, nemandi í Sunnulækjarskóla.
Við erum afar stolt af góðu gengi nemenda skólans og óskum vinningshöfum og fjölskyldum þeirra til hamingju með frábæran árangur.