Vikuna 24.-30. september fengu nemendur Sunnulækjarskóla skemmtilega heimsókn.
Landsliðmaðurinn og yfirþjálfari taekwondo deildarinnar á Selfossi, Daníel Jens Pétursson heimsótti alla árganga og kynnti fyrir þeim Taekwondoíþróttina. Daníel kom í íþróttatíma og sýndi nemendum grunnatriðin í íþróttinni sem hentar fyrir allan aldur.
Framtakið mæltist vel fyrir og skemmtu börnin sér vel.