Fimmtudaginn 21. nóvember s.l. fengu nemendur í 9. og 10. bekk heimsókn frá Amnesty International sem kynnti samtökin og það mikilvæga starf sem að þau eru að vinna í þágu mannréttinda. Krakkarnir fengu það verkefni að búa til samfélag sem verndaði réttindi þegnanna en máttu aðeins búa til þrjár reglur og þurftu að rökstyðja valið á þeim.
Nemendur skemmtu sér vel um leið og þau lærðu ýmislegt um mannréttindi. Viljum við þakka félögunum frá Amnesty fyrir skemmtilega og uppfræðandi heimsókn.