Í dag var skólinn okkar færður í jólabúning. Verkefnið hófst með samsöng í Fjallasal þar sem yfir 700 nemendur og starfsmenn komu saman og sungu jólalög. Söngstundin var vinasöngstund en það þýðir að eldri vinir sækja yngri vini og sitja með þeim í söngstundinni.
Að söngnum loknum fylgdust vinirnir áfram að og tóku til við að skeyta skólann hátt og lágt. Flestir klæddust rauðri flík, margir með jólasveinahúfur og jafnvel skegg.
Bros var á hverju andliti og gleðin var við völd í dag.