Í tilefni af degi barnabókarinnar sem haldinn er á fæðingardegi H.C Andersens 2. apríl, gáfu IBBY samtökin á Íslandi íslenskum börnum smásöguna Stóri bróður sem Friðrik Erlingsson hefur samið af því tilefni.
Í dag 4. apríl var sagan svo lesin í beinni útsendingu á Rás 1. Margir nemendur Sunnulækjarskóla settust fram í Fjallasal og hlustuðu á söguna í beinni útsendingu en hjá öðrum var sagan lesin í heimakrók.
Við þökkum fyrir gott framtak.