Alþjóðlegur dagur barnabókarinnar

Í tilefni af degi barnabókarinnar sem haldinn er á fæðingardegi H.C Andersens 2. apríl, gáfu IBBY samtökin á Íslandi íslenskum börnum smásöguna Stóri bróður sem Friðrik Erlingsson hefur samið af því tilefni.

Í dag 4. apríl var sagan svo lesin í beinni útsendingu á Rás 1.  Margir nemendur Sunnulækjarskóla settust fram í Fjallasal og hlustuðu á söguna í beinni útsendingu en hjá öðrum var sagan lesin í heimakrók.

Við þökkum fyrir gott framtak.

B_IMG_0198 C_IMG_0188 IMG_0196