Við ætlum að eiga skemmtilega stund saman, borða góðan mat, skemmta hvert öðru og dansa. Skólinn opnar kl.18:30 og borðhald hefst stundvíslega kl.19:00 í Fjallasal. Eftir borðhald verður dansað í íþróttahúsinu og lýkur skemmtuninni kl. 23:30.
Kennarar og starfsfólk skólans sjá um matargerð og að þjóna til borðs. Á meðan á borðhaldi stendur munu nemendur og kennarar sjá um skemmtiatriði.
Samkvæmt venju verður nemendum í 8.- 10. bekk gefið frí fyrstu tvær kennslustundirnar á föstudeginum 16.mars og mæta þeir þá kl.9:50.
Með kveðju,
Árshátíðarnefnd.