Árshátíðir í Sunnulækjarskóla
Í næstu viku eru árshátíðir í skólanum hjá nemendum í 1.-3. og 5.-7. bekk. Þau hafa æft stíft undanfarna daga og undirbúið allt sem best.
Litla upplestrarhátíðin er árshátíð 4. bekkjar. Hún fer nú fram miðvikudaginn 10. maí og fá foreldrar boð á þá hátíð þegar nær dregur. Árshátíð unglingastigs (8.-10.b) var 2. febrúar s.l. og tókst í alla staði mjög vel.
Tímasetning árshátíða í vikunni er eftirfarandi:
1. bekkur | Íþróttahús | Föstudaginn 7. apríl, kl. 8:30–9:30 |
2. bekkur | Íþróttahús | Miðvikudag 5. apríl, kl. 8:30-9:30 |
3. bekkur | Íþróttahús | Fimmtudag 6. apríl, kl. 8:30-9:30 |
5. bekkur | Fjallasal | Þriðjudag 4. apríl, kl. 17:30-19:00 |
6. bekkur | Fjallasal | Mánudag 3. apríl, kl. 17:30-19:00 |
7. bekkur | Fjallasal | Fimmtudag 6. apríl, kl. 17:30-19:00 |
Foreldrar eru velkomnir og viljum við hvetja alla sem tök hafa á að koma og fylgjast með árshátíðarskemmtun barnanna.
Þar sem íþróttahúsið verður mikið notað vegna æfinga og árshátíða næstu viku verður einhver íþróttakennsla utandyra. Vinsamlegast hafið í huga að nemendur komi klæddir eftir veðri.
Minnum svo á að páskafríið verður 10. apríl – 17. apríl. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 18. apríl.
Með kveðju,
Stjórnendur