Tímasetningar á árshátíðum í 1. – 7. bekk eru eftirfarandi:
Árgangur | Staður | Árshátíð dags. |
1. bekkur | Íþróttahús | Miðvikudag 25. mars Kl. 8:30–9:30 |
2. bekkur | Íþróttahús | Mánudag 23. mars Kl. 8:30-9:30 |
3. bekkur | Íþróttahús | Þriðjudag 24. mars Kl. 8:30-9:30 |
5. bekkur | Fjallasal | Þriðjudag 24. mars Kl. 17:30-19:00 |
6. bekkur | Fjallasal | Miðvikudag 25. mars Kl. 17:30-19:00 |
7. bekkur | Fjallasal | Mánudag 23. mars Kl. 17:30-19:00 |
Foreldrar eru velkomnir og viljum við hvetja alla sem tök hafa á að koma og fylgjast með árshátíðarskemmtun barnanna.
Þar sem íþróttahúsið verður mikið notað vegna æfinga og árshátíða næstu viku verður einhver íþróttakennsla utandyra. Vinsamlegast hafið í huga að nemendur komi klædd eftir veðri.
Árshátíð unglingastigs (8.-10.b) var 5. febrúar s.l. og tókst í alla staði mjög vel.
Litla upplestrarkeppnin fer fram hjá 4. bekk í apríl. Foreldrar fá boð á þá hátíð þegar nær dregur.
Minnum svo á páskafríið sem verður 30. mars – 6. apríl. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 7. apríl.
Með kveðju,
Stjórnendur