Árshátíðir

Árshátíðir í Sunnulækjarskóla

Í næstu viku eru árshátíðir í skólanum hjá nemendum í 1.-3. og 5.-7. bekk. Þau  hafa æft stíft undanfarna daga og undirbúið allt sem best.

Litla upplestrarhátíðin er árshátíð 4. bekkjar.  Hún fer nú fram miðvikudaginn 10. maí og fá foreldrar boð á þá hátíð þegar nær dregur.  Árshátíð unglingastigs (8.-10.b) var 2. febrúar s.l. og tókst í alla staði mjög vel.

Tímasetning árshátíða í vikunni er eftirfarandi:

1. bekkur Íþróttahús Föstudaginn 7. apríl, kl. 8:30–9:30
2. bekkur Íþróttahús Miðvikudag 5. apríl, kl. 8:30-9:30
3. bekkur Íþróttahús Fimmtudag 6. apríl, kl. 8:30-9:30
5. bekkur Fjallasal Þriðjudag 4. apríl, kl. 17:30-19:00
6. bekkur Fjallasal Mánudag 3. apríl, kl. 17:30-19:00
7. bekkur Fjallasal Fimmtudag 6. apríl, kl. 17:30-19:00

 

Foreldrar eru velkomnir og viljum við hvetja alla sem tök hafa á að koma og fylgjast með árshátíðarskemmtun barnanna.

Þar sem íþróttahúsið verður mikið notað vegna æfinga og árshátíða næstu viku verður einhver íþróttakennsla utandyra. Vinsamlegast hafið í huga að nemendur komi klæddir eftir veðri.

Minnum svo á að páskafríið verður 10. apríl – 17. apríl. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 18. apríl.

Með kveðju,
Stjórnendur