Nemendur í 10. bekk hafa undanfarið verið að vinna með íslenska dægurlagatexta og höfunda þeirra. Nemendur kynntu sér nokkra höfunda og lögin þeirra ásamt því að vinna ýmis verkefni.
Í tengslum við verkefnið buðum við einum höfundi, Herði Torfasyni, að koma og heimsækja okkur. Hörður kom til okkar í dag, sagði okkur sögu sína og spilaði nokkur lög.
Nemendur voru mjög áhugasamir og sýndu sögu hans áhuga.