Í dag héldu nemendur 1. til 4. bekkjar veglega danssýningu í Fjallasal Sunnulækjarskóla. Foreldrum var boðið að koma og fylgjast með sýningunni. Mæting foreldra var frábær og fylltu þeir hliðarsali, svalir og Skólabrú eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Börnin stóðu sig frábærlega og ánægja skein úr hverju andliti hvort sem dansað var Súperman, Gangnam Style eða hefðbundnara Foxtrot.
Það er danskennari barnanna, Íris Anna Steinarrsdóttir sem á veg og vanda að sýningunni.
Við þökkum foreldrum góðar undirtektir og skemmtilegan dag.