Eyðir barnið þitt eða unglingurinn of miklum tíma á netinu?

Þriðjudaginn 5. apríl verður Eyjólfur Örn Jónsson, sálfræðingur, með fyrirlestur á TEAMS um netnotkun barna- og ungmenna. 

“Um er að ræða fyrirlestur um hættur netsins með sérstaka áherslu á svokallaða "netfíkn" en rannsóknir benda til að sirka 12% reglulegra netnotenda eigi á hættu að ánetjast notkun sinni. Börn og unglingar eru sérstaklega útsett fyrir þessum vanda og því mikilvægt að foreldrar skilji vandann og viti hvað best sé að gera í málinu.

Nokkuð ljóst er að netið sé komið til að vera og því þýðir lítið að loka augunum fyrir því að þar geta leynst hættur eins og annarsstaðar. Við sendum börnin okkar ekki út í umferðina án þess að hafa kennt þeim umferðarreglurnar en við opnum oft heim netsins fyrir þeim án þess að skilja hann almennilega sjálf. Með réttri vitneskju og nálgun eiga allir að geta notið netsins og alls sem að það hefur upp á að bjóða án vandkvæða.”

Við hvetjum alla til að gefa sér tíma til að fylgjast með. Sjá nánar hér:

Eyðir barnið þitt eða unglingurinn of miklum tíma á netinu?