Foreldradagur 14. nóvember

Foreldrar og nemendur mæta í viðtöl miðvikudaginn 14. nóvember. Fundarboð með nákvæmri tímasetningu viðtala verður sent heim föstudaginn 9. nóvember. Nemendur mæta með foreldrum sínum í viðtölin en eru ekki í skólanum þann dag að öðru leyti. Skólavist er opin en skrá þarf börn sérstaklega þennan dag. 

Nemendafélagið ætlar að selja kaffi, kakó og vöfflur til styrktar félaginu.  Þar sem ekki er unnt að taka við greiðslukortum biðjum við foreldra að hafa með sér lítilræði af peningum til að kaupa sér hressingu af nemendum.