Sædís Ósk Harðardóttir og Halla Marinósdóttir

Foreldrafélag Sunnulækjarskóla veitir skólanum gjöf

Nú fyrir helgi afhentu þær Halla Marinósdóttir og Jódís Gísladóttir fyrir hönd foreldrafélagsins í Sunnulækjarskóla peningagjöf að upphæð 350.000 krónu, þar af 100.000 krónum til Sérdeildar Suðurlands. Skólinn mun nýta sína upphæð til að kaupa spil og afþreyingu fyrir nemendur í frímínútum til að efla félagsleg samskipti og draga úr símanotkun en Setrið mun fjárfesta í búnaði tengdri skynörvun og sérkennslu.

Við þökkum foreldrafélaginu góðan stuðning sem mun koma sér vel í skólastarfi næsta vetrar.