ADHD samtökin verða á Selfossi – Árborg miðvikudaginn 25. september 2013
Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra
Spjallfundur fyrir foreldra
Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra
Kynningarfundur ADHD samtakanna verður haldinn á Selfossi miðvikudaginn 25. september kl. 14:30 í Sunnulækjarskóla í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD.
Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin?
Björk Þórarinsdóttir formaður og Elín Hoe Hinriksdóttir varaformaður stjórnar ADHD samtakanna kynna samtökin.
Dagskrá
- 1. Hvað er ADHD?
Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar
- 2. ADHD á mismunandi aldursskeiðum.
Börn, unglingar, fullorðnir.
- 3. Greining og meðferðarleiðir.
- 4. Skóli, nám og teymisvinna.
- 5. Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð.
- 6. Framtíðarhorfur.
- 7. Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?
- 8. Helstu verkefni samtakanna.
Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla
- 9. Fyrirspurnir
Spjallfundur fyrir foreldra
Klukkan 20:00 í Sunnulækjarskóla verður spjallfundur sem Drífa B. Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hrefna Garðarsdóttir, geðlæknir stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta.
Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert
Nánari upplýsingar hjá Ellen Calmon framkvæmdastjóra ADHD samtakanna í síma 6947864