Fræðslufundur um ADHD

ADHD samtökin verða á Selfossi – Árborg miðvikudaginn 25. september 2013

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Spjallfundur fyrir foreldra

 

Kynningarfundur fyrir fagfólk, stuðningsfulltrúa og aðra

Kynningarfundur ADHD samtakanna verður haldinn á Selfossi miðvikudaginn 25. september kl. 14:30 í Sunnulækjarskóla í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD.

 

Efni fundar: Hvað er ADHD og hvað gera ADHD samtökin?

Björk Þórarinsdóttir formaður og Elín Hoe Hinriksdóttir varaformaður stjórnar ADHD  samtakanna kynna samtökin.

 

Dagskrá

  1. 1.    Hvað er ADHD?

Birtingarmyndir, orsakir og afleiðingar

  1. 2.    ADHD á mismunandi aldursskeiðum.

Börn, unglingar, fullorðnir.

  1. 3.    Greining og meðferðarleiðir.
  2. 4.    Skóli, nám og teymisvinna.
  3. 5.    Sjónarhóll ráðgjafamiðstöð.
  4. 6.    Framtíðarhorfur.
  5. 7.    Hvað gera ADHD samtökin og fyrir hvern eru þau?
  6. 8.    Helstu verkefni samtakanna.

Hlutverk, starfsemi, baráttumál, námskeið og fræðsla

  1. 9.    Fyrirspurnir

 

Spjallfundur fyrir foreldra

Klukkan 20:00 í Sunnulækjarskóla verður spjallfundur sem Drífa B. Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hrefna Garðarsdóttir, geðlæknir stýra fyrir foreldra barna og ungmenna með ADHD. Hvetjum foreldra barna í leik-, grunn- og framhaldsskóla til að mæta.

 

Fundirnir eru öllum opnir og kosta ekkert

 

Nánari upplýsingar hjá Ellen Calmon framkvæmdastjóra ADHD samtakanna í síma 6947864