Hinseginvika Árborgar

Vikuna 17. - 23. janúar 2022 ætlar Forvarnateymi Árborgar í samvinnu við sveitarfélagið að halda sína fyrstu Hinseginviku frá upphafi.
Hátíðin er haldin til að auka fræðslu, skapa umræður og veita stuðning til þeirra sem tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt.
Til að mynda verða lesnar bækur um hinsegin málefni í leikskólum sveitarfélagsins, regnbogafánum verður flaggað víðsvegar um bæinn og ætlar GK bakarí að baka í regnbogalitum.
Við hvetjum alla íbúa, nemendur og aðstandendur þeirra að klæðast regnbogalitum þann 19. janúar og sýna þannig samstöðu og stuðning.
Þann 17. janúar kl. 20:30 verður fræðsla á TEAMS í boði frá Samtökunum ‘78 fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Í fræðslunni verður farið yfir grunninn að hinseginleikanum, fjallað um kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni og kyntjáningu. Farið er yfir helstu grunnhugtök og orðanotkun tengda hinseginleikanum og fjallað um starf Samtakanna '78.
Tengill á TEAMS fræðslu
Hægt er að senda inn nafnlausar spurningar sem fyrirlesarinn mun taka fyrir í lok fyrirlestursins.
Tengill til að senda inn spurningar
Nánari upplýsingar um Hinseginvikuna birtast hér á vefsíðu sveitarfélagsins og samfélagsmiðlum þegar nær dregur og á Facebook síðu Samtakana 78, Fræðsla frá Samtökunum ‘78