Hótel Lækur – 7. MSG

 

Krakkarnir í 7.MSG hafa verið að vinna að mjög skemmtilegu verkefni sl. mánuð.  Þau ákváðu að stofna  hótel,  kjósa sér hótelstjóra og kjósa svo nafn á hótelið „Hótel Lækur“.  Það var farin vettvangsferð á Hótel Selfoss og þar kynntu börnin sér ýmislegt er varðar hótelrekstur.   Því næst sköpuðu þau  störf, gerðum starfslýsingar og sóttu svo um.  Margir lögðu mikla vinnu í umsóknirnar.  Hótelstjóri tók viðtal við alla og samdi um kaup og kjör.  Börnin skipuðu sér svo í hópa þar sem sumir gerðu kostnaðaráætlun fyrir hótelið, aðrir launakostnaðaráætlun, einn hópur gerði kynningarbækling og annar gerði matseðil bæði á íslensku og ensku.  Einnig voru gerð fjögur kynningarmyndbönd um þjónustuna sem er í boði á hótelinu.

Verkefnið  endaði með opnunarhátíð á kennslusvæði bekkjarins  sem búið var að breyta í veitingastað.  Börnin  komu með kex og snakk að heiman en kennari skaffaði djús, kaffi og kerti.  Foreldrum, stjórnendum og 7.ÁT var boðið á hátíðina þar sem nemendur kynntu verk sín og þjónuðu til borðs.

106 107