Innritun í grunnskóla skólaárið 2013−2014

Innritun í grunnskóla skólaárið 2013−2014

Innritun barna sem eru fædd árið 2007 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2013 fer fram 8.−18. mars næstkomandi. Hægt er að innrita rafrænt á Mín Árborg eða á eyðublöðum sem hægt er að fá á heimasíðum grunnskólanna og í Ráðhúsinu. Þeim umsóknum á að skila í viðkomandi skóla. Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir fimmtudaginn 22. ágúst 2013. Upplýsingar um skólahverfi hvers skóla eru á www.arborg.is Nánari upplýsingar er hægt að fá í grunnskólunum og hjá fræðslustjóra.

                                                             Fræðslustjóri og skólastjórar í Árborg