Laust starf aðstoðarskólastjóra við Sunnulækjarskóla

Staða aðstoðarskólastjóra við Sunnulækjarskóla er laus til umsóknar 

 

Umsækjandi þarf að hafa leyfisbréf grunnskólakennara, góða stjórnunar- og skipulagshæfileika, mikla hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi.  Þekking og færni á sviði stjórnunar í opnum skóla með áherslu á teymisvinnu og einstaklingsmiðaða nálgun er mikilvæg, ásamt áhuga á þróunarstarfi og færni í að leiða teymisvinnu. 

Umsókn fylgi greinargerð þar sem fram komi hver er reynsla og menntun umsækjanda, hvaða sýn hann hefur á skólastarf, nýbreytni og hlutverk skólastjórnenda í skólastarfi. 

Við Sunnulækjarskóla eru um 550 nemendur í 1. – 10. bekk veturinn 2014 – 15  Frekari upplýsingar má finna á vef skólans http://www.sunnulaekjarskoli.is og hjá skólastjóra, Birgi Edwald í síma 480-5400 eða tölvupósti, birgir@sunnulaek.is. 

Umsóknarfrestur er til 4. maí 2014.

Laun fara eftir kjarasamningi LN og KÍ.

 

Umsókn sendist til skólastjóra Sunnulækjarskóla, Norðurhólum 1, 800 Selfossi.