Nú er lokið skemmtilegu lestrarátaki í 7.bekk sem hefur staðið yfir í 5 vikur. Nemendur lásu heima og fengu jólakúlur til að hengja á jólatré í stofunni okkar fyrir ákveðinn fjölda blaðsíðna. Rúsínan í pylsuendanum var lestrarhátíðin þar sem leynigesturinn, Gunnar Helgason, las upp fyrir þau úr nýútkominni bók sinni „Rangstæður í Reykjavík“ og kynnti fyrri bækur sínar. Síðan fengu þau að spyrja hann og í lokin gaf hann eiginhandaráritanir.
Hann hrósaði krökkunum okkar fyrir kurteisi og áhugasemi.