Litlu jólin í Sunnulækjarskóla verða föstudaginn 19. desember. Eins og áður verður jólaskemmtuninni tvískipt og munu eldri nemendur sækja yngri nemendur og fylgja þeim að jólatrénu. Þannig munu nemendur í 1., 4., 5., 6., 9. og 10. bekk halda sína jólaskemmtun kl. 9:10 – 10:45 og nemendur 2., 3., 7. og 8. bekk kl. 11:00 – 12:35. Þennan dag mæta börn einungis á skemmtunina.
Skemmtunin mun hefjast með jólahelgileik 4. bekkjar. Því næst fara nemendur til umsjónarkennara sinna og eiga jólastund í sínum umsjónarhópi. Þá verður gengið í kringum jólatréð í Fjallasal og hver veit nema jólasveinar líti í heimsókn með eitthvert góðgæti í poka.
Skólavistun verður opin frá kl. 7:45 og verður þeim börnum sem þar dvelja fylgt á jólaskemmtunina á réttum tíma. Öll börn fá kakó og flatkökur á stofujólum en ekki verður matur í mötuneyti skólans þennan dag. Þau börn sem fara á skólavist eftir skemmtun munu þó borða í skólanum.
Byrjum aftur 5. janúar 2015
Skólahald Sunnulækjarskóla mun svo hefjast að nýju mánudaginn 5. janúar og mæta nemendur þá samkvæmt stundaskrá.