Litlu jólin

Litlu jólin í Sunnulækjarskóla verða föstudaginn 19. desember.  Eins og áður verður jólaskemmtuninni tvískipt og munu eldri nemendur sækja yngri nemendur og fylgja þeim að jólatrénu. Þannig munu nemendur í 1., 4., 5., 6., 9. og 10. bekk halda sína jólaskemmtun kl. 9:10 – 10:45 og nemendur 2., 3., 7. og 8. bekk kl. 11:00 – 12:35.  Þennan dag mæta börn einungis á skemmtunina.

Skemmtunin mun hefjast með jólahelgileik 4. bekkjar.  Því næst fara nemendur til umsjónarkennara sinna og eiga jólastund í sínum umsjónarhópi.  Þá  verður gengið í kringum jólatréð í Fjallasal og hver veit nema jólasveinar líti í heimsókn með eitthvert góðgæti í poka.

Skólavistun verður opin frá kl. 7:45 og verður þeim börnum sem þar dvelja fylgt á jólaskemmtunina á réttum tíma.  Öll börn fá kakó og flatkökur á stofujólum en ekki verður matur í mötuneyti skólans þennan dag.  Þau börn sem fara á skólavist eftir skemmtun munu þó borða í skólanum.

Byrjum aftur 5. janúar 2015

Skólahald Sunnulækjarskóla mun svo hefjast að nýju mánudaginn 5. janúar og mæta  nemendur þá samkvæmt stundaskrá.