Nemendur í 1. bekk.

Nemendur í 1. bekk fengu gefins reiðhjólahjálma

Nemendur í 1. bekk fengu gefins reiðhjólahjálma frá Kiwanis og Eimskip á dögunum. Börnin fengu einnig fræðslu um mikilvægi þess að nota hjálm. Löng hefð er fyrir því að Kiwanis og Eimskip gefi nemendum 1 .bekkjar hjálma og meðfylgjandi orðsending fylgdi gjöfinni.

Afgreiðsla hlífðarhjálma hófst 1997 til 7 ára barna. Eimskip hefur
verið kostnaðaraðili frá árinu 2004 en klúbbarnir undirbúið  dreifingu.

Eimskips trausta átakið
og okkar í slysavörnum
Er vænsta hjálma verkefnið
er veitist landsins börnum


Hjálmur þétt um höfuðið
höggum á að varna.
Eimskip veitir verðmætt lið
að varna slysum barna

Foreldrum mikill fengur er
sú farsæld hverju sinni,
ef hjólandi barnið hjálminn ber
á höfði í umferðinni. 

Hjörtur Þórarinsson
Búrfelli