Í dag var nýr vefur Sunnulækjarskóla tekinn í notkun.
Undanfarið hefur verið unnið að því að flytja það sem gagnlegt er af gamla vefnum yfir á þann nýja. Enn er þó ýmislegt ógert en vonandi tekst okkur að bæta þar úr á næstu dögum.
Til að draga úr líkum á vandamálum sem fylgja þessu umskiptum er tengill neðarlega til vinstri á nýja vefnum yfir á þann gamla og því hægt að nálgast allt efni sem þar er eftir sem áður.
Góðar ábendingar og athugasemdir óskast sendar á sunnulaekjarskoli@sunnulaek.is.